Fótboltastjörnur í Þýskalandi hafa verið afar duglegar í aðstoð við heilbrigðiskerfið þar í landi í baráttunni gegn kórónuveirunni.
Joshua Kimmich og Leon Goretzka gáfu eina milljón evra saman og hafa fengið Hector, Leroy Sane, Mats Hummels og fleiri stjörnur með sér í lið í stórfelldu styrktarátaki.
Nú hefur Robert Lewandowski bæst í hópinn og gefið eina milljón evra ásamt eiginkonu sinni Önnu.
„Ástandið í kringum okkur er erfitt. Í dag erum við öll saman í liði. Ef við getum hjálpað einhverjum þá verðum við að gera það, þetta ástand hefur áhrif á okkur öll," sögðu hjónin í samtali við Bild.
„Við vonumst til að geta hafið okkar eðlilega líf aftur sem fyrst. Við verðum öll að standa saman í þessari baráttu."
Athugasemdir