Fotbolti.net
21.08.18 - 21:14
Hilmar Jökull Stefánsson

Hildur Antons: Alltaf gott á toppnum

Auglýsing
Hildur í leik með Breiðablik

Hildur í leik með Breiðablik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hildur Antonsdóttir var valin maður leiksins í dag og skoraði mark í 2-0 sigri Breiðabliks sem kom þeim grænklæddu aftur á toppinn.
„Það er alltaf gott að vera á toppnum en það er bara leikur á sunnudaginn og við byrjum að einbeita okkur að honum á morgun.“



Spurð út í bikarúrslitin og hvort ekki hefði verið fögnuður eftir að Blikastúlkur voru krýndar bikarmeistarar síðastliðið föstudagskvöld hafði Hildur þetta að segja.



„Það var náttúrulega stutt í þenann leik en það var partý í Smáranum fyrir stuðningsmenn og leikmenn en svo var fólk bara komið snemma heim að undirbúa sig fyrir þennan leik.“



Hildur var eins og áður segir valin maður leiksins að mati Fótbolta.net, skoraði mark og vann boltann strax eftir miðjuna til að skapa seinna markið.



„Það er alltaf gaman að skora og vinna boltann svo og vera partur af öðru marki. Gerist ekki skemmtilegra en það.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.