21.08.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Dýrmætur sigur ÍR á Seltjarnarnesi

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Grótta 1 - 3 ÍR
0-1 Óliver Andri Einarsson ('25 )
0-2 Guðjón Máni Magnússon ('42 )
0-3 Guðjón Máni Magnússon ('53 )
1-3 Einar Tómas Sveinbjarnarson ('85 )
0-1 Óliver Andri Einarsson ('25 )
0-2 Guðjón Máni Magnússon ('42 )
0-3 Guðjón Máni Magnússon ('53 )
1-3 Einar Tómas Sveinbjarnarson ('85 )
Lestu um leikinn: Grótta 1 - 3 ÍR
Grótta og ÍR tókust á í seinni leik kvöldsins í Lengjudeild karla og voru gestirnir frá Breiðholti hættulegri aðilinn.
Óliver Andri Einarsson náði forystunni eftir góðan undirbúning frá Kristjáni Atla Marteinssyni og Bergvin Fannari Helgasyni áður en Guðjón Máni Magnússon tvöfaldaði hana sautján mínútum síðar.
Guðjón Máni skoraði eftir hraða skyndisókn en heimamenn voru ósáttir með dómgæsluna þar sem þeir vildu sjá rangstöðu dæmda, en fengu ekki.
Staðan var 0-2 í leikhlé og innsiglaði Guðjón Máni sigurinn með sínu öðru marki í upphafi síðari hálfleiks. Boltinn barst til hans eftir hornspyrnu og kláraði hann með góðu skoti.
ÍR gat bætt fjórða markinu við en tókst ekki. Þess í stað minnkuðu heimamenn muninn á lokamínútunum svo lokatölur urðu 1-3.
Þetta er dýrmætur sigur fyrir ÍR í fallbaráttunni. Liðið er núna með 25 stig eftir 20 umferðir, fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Þetta tap er skellur fyrir Seltirninga sem eru að missa af umspilssæti. Þeir eru með 27 stig eftir 19 umferðir, fimm stigum frá umpilssæti, og aðeins með tvö stig úr síðustu fjórum umferðum.