Newcastle á eftir Scalvini - Barcelona snýr sér aftur að Díaz - Tottenham vill belgískan miðvörð
   mán 21. september 2020 19:26
Brynjar Ingi Erluson
England: Aston Villa lagði tíu leikmenn Sheffield United
Aston Villa 1 - 0 Sheffield Utd
0-0 John Lundstram ('36 , Misnotað víti)
1-0 Ezri Konsa ('63 )
Rautt spjald: John Egan, Sheffield Utd ('12)

Aston Villa lagði Sheffield United að velli, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en það var Ezri Konsa sem gerði sigurmarkið þegar um það bil hálftími var eftir.

Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og ógnuðu á fyrstu mínútu og var verkefnið erfiðara er John Egan fékk að líta beint rautt spjald á 12. mínútu.

Tyrone Mings átti þá langa sendingu fram völlinn og var Ollie Watkins í baráttunni við Egan sem braut óþarflega af sér með því að toga í Watkins og fékk hann rautt spjald fyrir vikið.

Sheffield United fékk vítaspyrnu á 32. mínútu er Matt Targett braut á Chris Basham innan teigs. John Lundstram fór á punktinn en Emiliano Martinez varði vítið. Frábær byrjun hjá Martinez sem kom til Villa frá Arsenal á dögunum.

Ezri Konsa kom Villa yfir á 63. mínútu. Targett átti hornspyrnu á Mings sem skallaði hann á Konsa og átti leikmaðurinn ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið.

Fyrsti sigur Villa staðreynd í dag gegn Sheffield United sem hefur tapað báðum leikjum sínum í deildinni.


Athugasemdir
banner
banner