Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 21. október 2019 15:45
Elvar Geir Magnússon
Rakitic til Inter?
Ítalskir fjölmiðlar segja að krótaíski landsliðsmaðurinn Ivan Rakitic fari líklegast til Inter.

Þessi miðjumaður Barcelona hefur verið orðaður við flutninga á undanförnum mánuðum. Manchester United hefur sýnt mikinn áhuga.

Calciomercato segir þó líklegast að Inter muni fá leikmanninn.

Rakitic hefur aðeins byrjað einn af tíu leikjum Börsunga á þessu tímabili og gæti hann flutt sig um set til Inter í janúarglugganum.

Gildandi samningur Rakitic við Barcelona er til 2021.
Athugasemdir
banner