Spænska íþróttablaðið Marca lætur Gareth Bale, leikmann Real Madrid, heyra það á forsíðu sinni í dag.
Bale hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Real Madrid undanfarna mánuði en hann var nálægt því að fara frá félaginu í sumar.
Bale hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Real Madrid undanfarna mánuði en hann var nálægt því að fara frá félaginu í sumar.
Bale þykir mun skemmtilegra að spila með landsliði Wales en Real Madrid. Á Spáni hafa sögur gengið um að hann hafi meiri áhuga á að vera í golfi en að spila með Real Madrid.
Eftir að Wales tryggði sér sæti á EM í fyrrakvöld hélt Bale á borða sem á stóð: „Wales, golf, Real Madrid - í þessari röð."
Óhætt er að segja að þetta hafi ekki farið vel í menn á Spáni og Marca birti í dag á forsíðu sinni mynd af Bale þar sem stóð: „Virðingarlaus, á rangri leið, óþakklátur - í þessari röð."
👀
— John Bennett (@JohnBennettBBC) November 21, 2019
Marca front page on Bale:
“Disrespectful, misguided, ungrateful.”
“In that order.” pic.twitter.com/BEesqunhpa
Athugasemdir