21.12.20 - 17:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Samningur Elmars runninn út - „KR-ingar tilbúnir að safna"

Elmar í leik með KR í desember árið 2018 (Bose-mótið)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elmar í leik með KR í desember árið 2018 (Bose-mótið)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samningur Theódórs Elmars Bjarnasonar við tyrkneska liðið Akhisarspor rann út í síðustu viku, þann 15. desember. Miðjumaðurinn er því laus allra mála ef marka má Transfermarkt.
Vakin var athygli á þessu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.
Vakin var athygli á þessu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag.
„Ef hann kemur til Íslands þá vitum við hvert hann fer," sagði Kristján Óli Sigurðsson. „Það eru alltaf einhverjir KR-ingar sem eru með nóg milli handanna sem eru tilbúnir [með veskið] þegar gamlir KR-ingar eru búnir með reisu sína úti í heimi. Þá er safnað fyrir slíkum mönnum og Theódór er einn af þeim."
Mikael Nikulásson, stuðningsmaður KR, segir líklegra að Elmar komi í KR heldur en Guðlaugur Victor Pálsson sem orðrómur hefur verið um að undanförnu. Mikael útilokaði þó ekki að Valur myndi reyna við Elmar.
Elmar er uppalinn KR-ingur og lék með meistaraflokki liðsins árið 2004 áður en hann hélt utan til Celtic í Skotlandi. Elmar er 33 ára gamall og á að baki rúmlega 40 A-landsleiki.

Fatnaður sem stjóri í efsta sæti í C deild á Englandi, Bíll í umboðsmennsku, Bjór skorað fyrir Wolves og réttur af matseðli sem hefur spilað með Emil Hallfreðshttps://t.co/qUCrvEOqB8
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) December 21, 2020
Heimild: Dr. Football