Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 22. janúar 2020 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Soumare segist ætla að klára tímabilið með Lille
Mynd: Getty Images
Boubakary Soumare, miðjumaður Lille í Frakklandi, hefur verið sterklega orðaður við bæði Manchester United og Chelsea. Hann segir þó núna að hann ætli að klára tímabilið með Lille.

Hinn tvítugi Soumare hefur spilað 25 leiki á tímabilinu og vakið mikla athygli fyrir góða frammistöðu.

„Ég sé mig sjálfan ekki fara," sagði Soumare við L’Equipe í Frakklandi. „Ég er að læra og við erum með stór markmið til að ná, eins og að komast í Meistaradeildina. Brottför er ekki í kortunum."

„Ég vil klára tímabilið, já. Þetta er ekki rétti tíminn til þess að fara. Ég vil ekki fara héðan með eftirsjá."

Hann segist vera mjög einbeittur á Lille og franska U21 landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner