Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. janúar 2023 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Barcelona og Real Madrid unnu bæði
Toni Kroos skoraði annað mark Real Madrid
Toni Kroos skoraði annað mark Real Madrid
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Barcelona og Real Madrid unnu bæði leiki sína í La Liga á Spáni í kvöld.

Börsungar lögðu Getafe á Nou Camp, 1-0. Borja Mayoral kom boltanum í netið fyrir gestina á 3. mínútu en markið dæmt af vegna rangstöðu.

Heimamenn náðu forystunni á 35. mínútu. Raphinha lagði boltann inn á Pedri í teignum sem skoraði með góðu skoti framhjá David Soria í markinu.

Það reyndist eina mark leiksins en Barcelona er á toppnum í La Liga með 44 stig, þremur stigum á undan Real Madrid sem vann 2-0 sigur á Athletic nú rétt í þessu.

Karim Benzema kom Madrídingum yfir í Baskalandi á 24. mínútu og þá gulltryggði þýski miðjumaðurinn Toni Kroos sigurinn undir lok leiks með skoti rétt fyrir utan teig.

Úrslit og markaskorarar:

Athletic 0 - 2 Real Madrid
0-1 Karim Benzema ('24 )
0-2 Toni Kroos ('90 )

Barcelona 1 - 0 Getafe
1-0 Pedri ('35 )
Athugasemdir
banner
banner