Fotbolti.net
22.02.18 - 21:49
Ívan Guðjón Baldursson

Pétur Péturs má ekki segja frá hálfleiksræðunni

Auglýsing
Pétur ásamt Margréti Magnúsdóttur á hliðarlínunni í kvöld.

Pétur ásamt Margréti Magnúsdóttur á hliðarlínunni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Pétur Pétursson vann sinn fyrsta titil eftir að hafa tekið við sem þjálfari kvennaliðs Vals síðasta haust.

Valur vann Reykjavíkurmótið eftir 3-1 sigur gegn KR fyrr í kvöld og var Pétur afar ósáttur með fyrri hálfleik Vals.
„Mér fannst við vera slakar í fyrri hálfleik en spiluðum betur í seinni hálfleik og gott að vinna þennan leik,\" sagði Pétur að leikslokum.

Pétur segist ekki geta endurtekið hálfleiksræðuna vegna orðbragðsins sem hann notaði til að vekja lærisveina sína til lífsins.

Pétur bætti því við að Hlín Eiriksdóttir hafi ekki verið með vegna smávægilegra meiðsla. Hann segist vera ánægður með endurkomu Hallberu til Vals.

„Hún er náttúrulega toppleikmaður og frábært að fá hana í Val. Við ætlum að reyna að vera í baráttu um alla titla sem til eru, ef það er hægt. Svo kemur í ljós hvort það gangi upp eða ekki.\"

Pétur segist vona að Valur bæti við sig nokkrum leikmönnum fyrir sumarið en vill ekki gefa upp nein nöfn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.