Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. júní 2022 09:30
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Öll mörk 10. umferðar Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vísir hefur birt markasyrpu þar sem sjá má öll átján mörkin sem skoruð voru í 10. umferð Bestu deildarinnar.

Umferðin fór öll fram í þessari viku, að undanskildum leik Víkings og Keflavíkur sem spilaður var í lok apríl og Víkingar unnu 4-1.

Á mánudaginn skoraði Guðmundur Magnússon þrennu í 3-3 jafntefli Fram og ÍBV, KR jafnaði seint gegn Stjörnunni 1-1 og Breiðablik rúllaði yfir KA 4-1.

Í gær vann Valur 2-1 sigur gegn Leikni og ÍA og FH gerðu 1-1 jafntefli við erfiðar aðstæður á Akranesi.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner