Fotbolti.net
22.09.18 - 16:29
Silja Runólfsdóttir

Bojana: Mínar stelpur spiluðu vel

Auglýsing
Bojana: Mínar stelpur spiluðu vel
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Hertz
„Við spiluðum skemmtilegan og fallegan fótbolta en við sköpuðum lítið af færum, alvöru færum en yfir heildina var spilamenskan bara fín," sagði Bojana Besic, þjálfari KR, eftir markalaust jafntelfi við HK/Víking í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna.
Mia Gunther meiddist í síðasta leik. Aðspurð um hvernig hún hefði það sagði Bojana: ..Mia var óheppin í þessum leik, þetta eru alvarleg meiðsli og mestu líkur eru á að hún sé með slitið krossband þannig hún er off næstu mánuði."

Framhald Bojönu sem þjálfara sagði hún að hún væri með þriggja ára samning en þetta væru hlutir sem kæmu bara í ljós og myndu ráðast á næstu dögum.

„Það er alveg klárt að við ætlum að reyna að styrkja liðið og taka næstu skref á næsta tímabili. Það verða alltaf einhverjar breytingar á leikmannahóp en það kemur í ljós hvað það verður mikið."

Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.