Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 22. október 2020 12:45
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo enn með veiruna - Ekki með gegn Barcelona
Cristiano Ronaldo verður ekki með í Meistaradeildarleiknum gegn Barcelona í næstu viku.

Ronaldo fór í nýja Covid-19 skimun og er enn með veiruna.

Spænskir fjölmiðlar segja að þetta þýði að Juventus verði án sinnar skærustu stjörnu í Meistaradeildinni í næstu viku en leikurinn verður í Tórínó.

Ronaldo hefur ekki mætt Lionel Messi í Meistaradeildinni síðan hann lék með Real Madrid í undanúrslitunum 2010-11. Barcelona vann þá viðureign og lagði svo Manchester United í úrslitaleik.


Athugasemdir
banner