Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. nóvember 2020 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Haller hetjan gegn ísköldu Sheffield United-liði
Mynd: Getty Images
Sheffield Utd 0 - 1 West Ham
0-1 Sebastian Haller ('56)

West Ham skaust upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Sheffield United í dag.

Eina mark leiksins skoraði franski Fílbeinstrendingurinn Sebastian Haller með frábæru skoti upp í hægra markhornið á 56. mínútu. Haller lét vaða frá vítateigslínunni og Aaron Ramsdale átti ekki möguleika í marki Sheffield.

Heimamenn í Sheffield áttu fleiri tilraunir á rammann heldur en gestirnir og komst Ollie McBurnie nálægt því að jafna á 76. mínútu en skotið hans fór í þverslána.

Sheffield er áfram í botnsæti deildarinnar með eitt stig eftir níu leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner