Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. nóvember 2021 11:59
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Blikar rúlluðu yfir KR-inga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik valtaði yfir KR á Kópavogsvelli 5-1 í Bose-æfingamótinu um helgina.

Gísli Eyjólfsson kom heimamönnum yfir og Davíð Ingvarson bætti öðru markinu við. Staðan 2-0 eftir 20 mínútna leik. Viktor Karl Einarsson bætti þriðja markinu við áður en flautað var til hálfleiks. Viktor skoraði síðan sitt annað mark og fjórða mark Blika áður en Dagur Dan Þórhallsson bætti fimmta markinu við.

Hægt er að sjá mörkin hér að neðan:

Byrjunarlið Breiðabliks: Anton Ari (m); Davíð Atla, Damir, Arnar Daníel, Davíð Ingvars; Höskuldur, Oliver, Viktor Karl; Sölvi Snær, Kristinn Steindórs, Gísli Eyjólfs.

Byrjunarlið KR: Aron Snær (m); Emil Ásmunds, Kennie Chopart, Aron Kristófer, Kristinn Jónsson; Grímur Ingi, Pálmi Rafn, Ægir Jarl; Kristján Flóki; Sigurður Bjartur, Kjartan Henry.


Athugasemdir
banner
banner
banner