Fotbolti.net
23.01.25 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Útlit fyrir að Zinchenko muni yfirgefa Arsenal á næstu dögum

Oleksandr Zinchenko.

Oleksandr Zinchenko.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er útlit fyrir að hinn fjölhæfi Oleksandr Zinchenko muni yfirgefa Arsenal áður en janúarglugginn lokar.

Samkvæmt Telegraph er Dortmund tilbúið að krækja í hann.
Dortmund er í leit að vinstri bakverði og hefur sett Zinchenko efst á sinn lista. Úkraínumaðurinn getur einnig spilað inn á miðsvæðinu.

Ben Chilwell er annar leikmaður sem Dortmund hefur skoðað en Zinchenko er ofar á listanum.

Arsenal keypti hinn 28 ára gamla Zinchenko frá Manchester City fyrir 30 milljónir punda sumarið 2022. Hann hefur spilað 81 leik fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.