Belgíski miðjumaðurinn Axel WItsel er himinlifandi með framlag Erling Braut Haaland frá komu hans til Borussia Dortmund.
Norski sóknarmaðurinn skoraði í sigri gegn Werder Bremen í gær og er kominn með tólf mörk í átta fyrstu leikjum sínum fyrir Dortmund.
„Haaland þarf ekki mörg færi til að skora, hann er ískaldur. Ég vona að hann skori aftur í næsta leik, hann á eftir að skora mikið af mörkum fyrir liðið," sagði Witsel eftir sigurinn gegn Werder Bremen í gær.
„Þetta er akkurat sóknarmaðurinn sem við þurftum. Við erum mjög ánægðir að hafa hann í liðinu."
Dortmund er í þriðja sæti þýsku deildarinnar, fjórum stigum eftir toppliði FC Bayern.
Athugasemdir