Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 23. apríl 2021 15:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Giggs ákærður fyrir að ráðast á tvær konur
Ryan Giggs.
Ryan Giggs.
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales og fyrrum leikmaður Manchester United, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur.

Giggs var settur í leyfi sem landsliðsþjálfari í nóvember á síðasta ári eftir að hann var sakaður um að hafa ráðist á þáverandi kærustu sína Kate Greville, og aðra konu.

Giggs var handtekinn og síðar sleppt úr haldi en hann hefur núna verið ákærður. Hann neitaði sök í málinu þegar hann var handtekinn.

Hann mun mæta fyrir dóm í næstu viku, nánar tiltekið þann 28. apríl næstkomandi.

Giggs hefur ekki stýrt Wales frá því hann var handtekinn en liðið tekur þátt á EM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner