Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 23. apríl 2021 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City kaupir spennandi leikmann frá Brasilíu (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester City hefur fest kaup á brasilískum táningi sem kallaður er Kayky.

Hann kemur til félagsins frá Fluminense en hann mun klára tímabilið í Brasilíu.

Kayky er 17 ára gamall en talið er að hann muni kosta City 9 milljónir punda.

Kayky hefur verið líkt við Neymar, stórstjörnu Paris Saint-Germain. Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Fluminense á þessari leiktíð en City hefur verið að fylgjast með honum í fjölmörg ár.

City er líka talið hafa áhuga á Metinho, sem er 17 ára gamall miðjumaður Fluminense.


Athugasemdir
banner
banner
banner