Fotbolti.net
23.05.16 - 11:15
Jóhann Ingi Hafþórsson

Aron Einar: Ég rappaði en þið vonandi fáið ekki að sjá það

Auglýsing
Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu í dag.

Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson segir í samtali við Fótbolta.net í dag að tímabilið með Cardiff hafi verin ákveðin vonbrigði. Hann var inn og út úr liðinu og var að glíma við meiðsli.

Landsliðið kom saman í dag og hófust æfingar fyrir veisluna í Frakklandi sem hefst eftir um þrjár vikur.
„Ákveðin vonbrigði, ég er ekki alveg vanur því að spila svona lítið. Í byrjun tímabilsins var ég meiddur og átti erfitt með að komast inn í liðið. Svo kemst ég inn í liðið í miðjunni og veikist.\"

Hann hefur eins og áður hefur komið fram, verið að glíma við meiðsli.

„Ég er ágætur en ég veit ég þarf að spila með smá sársauka í sumar en ég fer í alla leiki 100%.\"

Gummi Ben bað Aron um að rappa á herrakvöldi Þórs en fyrirliðinn vildi lítið hrósa sér fyrir þá frammistöðu.

„Ég rappaði en ég bað fólk helst ekki um að setja það á samskiptamiðla, þið vonandi fáið ekki að sjá það.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.