Franska stórstjarnan Kylian Mbappe skrifaði undir samning við Paris Saint-Germain á dögunum en margir töldu hann vera á leið til Spánarmeistara Real Madrid á frjálsri sölu.
Hann valdi PSG að lokum en langflestir töldu aðeins tvö félög koma til greina í kapphlaupinu. Mbappe segist þó ekki aðeins hafa verið í sambandi við Real og PSG heldur einnig Liverpool á Englandi.
„Þetta var ekki bara Real Madrid og PSG - ég var líka í viðræðum um að ganga til liðs við Jürgen Klopp og félaga í Liverpool," sagði Mbappe við Telefoot.
„Ég ræddi við Liverpool því þetta er uppáhaldsfélag móður minnar. Ég veit ekki af hverju hún elskar Liverpool, þið verðið að spyrja hana!
„Liverpool er stórt félag. Ég man þegar ég hitti stjórnendur þess í Mónakó fyrir fimm árum."