Óli Stefán: Ekki búnir að vera að breyta neinu
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Óli Stefán Flóventsson var ánægður með fyrsta sigur Grindavíkur í rúman mánuð. Keflavík kom í heimsókn og tapaði 3-0 þrátt fyrir kröftugar upphafsmínútur.
Óli hrósaði Keflvíkingum fyrir sterka byrjun og var gríðarlega ánægður með Elias Alexander Tamburini, finnskan vinstri bakvörð sem er nýkominn til félagsins.
„Okkar vinna hefur verið frammistöðumiðuð og við höfum spilað vel þrátt fyrir töp. Á móti KA og FH vorum við ágætir og héldum því áfram í dag,\" sagði Óli.
„Við erum ekki búnir að vera að breyta neinu. Það er ekkert panik, við höldum bara áfram að vinna með okkar leik og það hefur virkað vel. Ég er rosalega stoltur og ánægður með strákana í dag.\"
Sigurjón Rúnarsson er 18 ára gamall og spilaði fimmta Pepsi-deildarleik ferilsins gegn Keflvíkingum í dag.
„Hann er rosalega þroskaður í sínum leik og ég vænti þess að hann haldi áfram að standa sig og bæti jafnvel í. Hann er gríðarlega efnilegur.\"