Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. júlí 2022 12:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Scamacca borinn saman við Zlatan - „Mjög stoltur af því"
Mynd: Getty Images
Hinn 23 ára gamli Gianluca Scamacca er á leið til West Ham frá Sassuolo en þessi ítalski framherji skoraði 16 mörk í 36 leikjum í Serie A á síðustu leiktíð.

Scamacca er hávaxinn og leikstíll hans hefur oft verið borinn saman við leikstíl Zlatan Ibrahimovic.

„Ég er mjög stoltur af því að vera borinn saman við Ibra. Hann er sigurvegari og hefur verið einn sá besti í mörg ár," sagði Scamacca.

Scamacca hefur leikið sjö landsleiki fyrir Ítalíu en enn ekki tekist að skora.


Athugasemdir
banner
banner
banner