Fotbolti.net
23.08.18 - 21:12
Stefán Marteinn Ólafsson

Binni Gests: Það telur allt núna

Auglýsing
Brynjar Gestsson þjálfari ÍR

Brynjar Gestsson þjálfari ÍR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

&Iacute;R-ingar ger&eth;u g&oacute;&eth;a fer&eth; su&eth;ur me&eth; sj&oacute; &thorn;egar &thorn;eir f&oacute;ru og heims&oacute;ttu Njar&eth;v&iacute;kinga &aacute; Njar&eth;taksv&ouml;llin &iacute; kv&ouml;ld. Leiknum lauk me&eth; 1-1 jafntefli en str&aacute;karnir fr&aacute; Brei&eth;holtinu skoru&eth;u &iacute; uppb&oacute;tart&iacute;ma.<br />
<em>„H&ouml;rku leikur, bar&aacute;ttu leikur og vi&eth; n&aacute;&eth;um a&eth; kreista &uacute;t &thorn;arna marki &iacute; lokin, vorum n&aacute;tturlega b&uacute;nir a&eth; f&aacute; nokkur dau&eth;af&aelig;ri &aacute;&eth;ur en &thorn;a&eth; kom svo &thorn;etta voru svona &aacute;g&aelig;tis s&aacute;rab&oacute;t, &thorn;essi leikur skiptist svol&iacute;ti&eth; &iacute; tvo h&aacute;lfleika.&quot; </em>Sag&eth;i Brynjar Gestsson &thorn;j&aacute;lfari &Iacute;R eftir leik.
Strákarnir frá Breiðholti skoruðu eins og áður segir jöfnunarmark sitt í uppbótartíma síðari hálfleiks en hversu sætt ætli það hafi verið að sjá á eftir boltanum fara inn svona seint í leiknum.

„ Það var gríðarlega mikilvægt að ná að taka þetta stig, það telur allt núna. Það sýnir karakter í liðinu að gefast ekki upp og menn héldu áfram alveg ótrauðir."



Aðspurður um uppleggið var það aðalega að mæta þeim bara í hörkunni og reyna opna þá sem Brynjari fannst ganga ágætlega.

„Við vorum bara ekki nógu grimmir inni í teig, þetta eru tvö skot í slá, eitt í stöng og svo erum við að skjóta þarna framhjá í dauðafæri og klafs inni í teig".

„Við reyndum svona að herja svolítið á veikleikana hjá þeim en þeir eru sterkir þarna tilbaka, þeir eru hávaxnir og völlurinn er aðeins erfiður yfirferðar fyrir bæði lið nátturlega, við vissum alveg hvað við vorum að fara út í, ég var ekki alveg nógu ánægður með hvernig við byrjuðum leikinn, mér fannst við vera full linir og svolítið langt frá þeim í fyrri hálfleik, við löguðum það í seinni hálfleik."




Það hefur verið smá bras á ÍR að skora mörk í sumar og var Binni alveg sammála því að það þótti ákveðið áhuggjuefni.

„Já að sjálfssögðu, miðað við færin í dag þá hefði maður nú kannski haldið að menn gætu potað inn tveimur, þremur en auðvitað er það svolitið áhygguefni en við erum að fá færin og þá heldur maður nátturlega alltaf í vonina og við erum búnir að fá færi í hverjum einasta leik, væri fínt ef það færi að detta núna."





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.