Fotbolti.net
23.09.18 - 17:08
Kristófer Jónsson

Helgi Sig: Maður veit aldrei í þessum þjálfarabransa

Auglýsing
Helgi var gríðarlega ánægður með sitt lið

Helgi var gríðarlega ánægður með sitt lið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, var kampakátur eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn KR í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla. Jafnteflið dugði Fylkismönnum til að tryggja áframhaldandi veru sína í deildinni.

„Þetta er mikill léttir og það er frábært hjá strákunum að koma hérna á KR-völlinn og sýna svona frábæran leik eins og við gerðum. ." sagði Helgi eftir leik.
Fylkismenn jöfnuðu leikinn þegar að fimm mínútur voru eftir af leiknum og braust út mikill fögnuður í leikslok.

„Markmiðið í dag var að klára okkar verkefni og sjá til hvað myndi gerast í öðrum leikjum. Þetta er búin að vera þrotlaus vinna síðustu tíu mánuði og strákarnir eiga þetta svo sannarlega skilið."

Helgi vildi ekki staðfesta það 100% hvort að hann myndi halda áfram að þjálfa Fylkisliðið eftir tímabilið.

„Það á nú bara eftir að koma í ljós og það skiptir ekki öllu máli. Ég er mjög sáttur í Árbænum en maður veit svosem aldrei í þessum þjálfarabransa hvað verður." sagði Helgi að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.