Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah skoraði tvö mörk er Egyptaland vann Níger, 3-0, í vináttuleik í kvöld. Þá skoraði Richarlison, leikmaður Tottenham Hotspur, tvö mörk í 3-0 sigri Brasilíu á Gana.
Salah hefur verið kaldur í liði Liverpool á þessari leiktíð og aðeins skorað tvö deildarmörk.
Hann hefur ekki skorað í síðustu þremur deildarleikjum liðsins en það er spurning hvort hann sé að finna sitt gamla form eftir að hafa skorað tvö mörk fyrir Egyptaland í kvöld.
Salah kom Egyptum yfir gegn Níger undir lok fyrri hálfleiks og bætti síðan öðru marki sínu úr vítaspyrnu í síðari hálfleiknum. Salah og hans menn í Egyptalandi spila síðan við Líberíu á þriðjudag áður en enska úrvalsdeildin fer aftur af stað.
Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison skoraði þá tvö mörk er Brasilía vann Gana, 3-0. Marquinhos kom Brössum á bragðið áður en Richarlison skoraði tvö mörk á tólf mínútum en Neymar lagði upp bæði mörkin.
Egyptaland 3 - 0 Níger
1-0 Mohamed Salah ('43 )
2-0 Mostafa Mohamed ('55 )
3-0 Mohamed Salah ('67 , víti)
Brasilía 3 - 0 Gana
1-0 Marquinhos ('9 )
2-0 Richarlison ('28 )
3-0 Richarlison ('40 )
Richarlison for Brazil this year:
— B/R Football (@brfootball) September 23, 2022
⚽ vs. Chile
⚽⚽ vs. Bolivia
🎁 vs. Japan
⚽ vs. South Korea
⚽⚽ vs. Ghana
Getting ready for the World Cup ♨️ pic.twitter.com/UvjDYNWIJk
Athugasemdir