Tottenham og Borussia Dortmund eru líklegust til að klófesta Dean Henderson ef hann fer frá Manchester United í sumar.
Henderson sló í gegn á láni hjá Sheffield United á síðasta tímabili en á þessu tímabili hefur hann verið varamarkvörður hjá Manchester United á eftir David De Gea.
Henderson er pirraður á stöðu sinni og sagt er að hann ætli að hugsa sér til hreyfings í sumar ef staðan breytist ekki.

Sky segir að Tottenham og Dortmund séu líklegust í baráttunni um Henderson.
Hugo Lloris, markvörður Tottenham, hefur verið orðaður við PSG og því gæti Tottenham verið í leit að nýjum markverði í sumar.
Athugasemdir