Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. maí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ingibergur Kort búinn að skora í öllum deildum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibergur Kort Sigurðsson bættist um helgina við hóp þeirra leikmanna sem hafa skorað í öllum deildum íslenska deildakerfisins.


Ingibergur leikur með uppeldisfélaginu Kormáki/Hvöt í 3. deildinni þessa dagana en hann spilaði með Víkingi Ólafsvík í Lengjudeildinni og Vatnaliljum í 4. deild á síðustu leiktíð.

Hann skoraði eitt mark í tveimur leikjum með Vatnaliljum en hafði þar áður skorað fyrir Fjölni í tveimur efstu deildunum og Njarðvík í 2. deild.

Hann skoraði sitt fyrsta mark í 3. deildinni um helgina þegar Kormákur/Hvöt hafði betur gegn Kára og bættist þar með við þennan skemmtilega hóp leikmanna.

Ingibergur er meðal yngstu leikmanna til að afreka þetta en hann er aðeins 24 ára gamall og á í heildina 114 keppnisleiki að baki samkvæmt vef KSÍ.


Athugasemdir
banner
banner
banner