lau 24. ágúst 2019 21:34
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KF með níu tær í 2. deild - KH úr fallsæti
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KF er búið að tryggja sig upp í 2. deildina næsta sumar ásamt Kórdrengjum en liðin rúlluðu yfir 3. deildina í ár.

KF er í öðru sæti, með níu stiga forskot á KV, þegar þrjár umferðir eru eftir af sumrinu. KF lagði Hött/Huginn að velli í afar spennandi leik í dag.

Alexander Már Þorláksson skoraði tvennu fyrir KF en Ivan Bubalo jafnaði á 70. mínútu og var staðan þá orðin 3-3.

Grétar Áki Bergsson náði að pota inn sigurmarkinu skömmu síðar og mikilvæg þrjú stig komin í hús.

Höttur/Huginn 3 - 4 KF
0-1 Alexander Már Þorláksson ('14, víti)
0-2 Aksentije Milisic ('34)
1-2 Rúnar Freyr Þórhallsson ('40)
1-3 Alexander Már Þorláksson ('58)
2-3 Knut Erik Myklebust ('65)
3-3 Ivan Bubalo ('70)
3-4 Grétar Áki Bergsson ('73)

KH fór þá upp úr fallsæti með 4-0 sigri gegn Sindra. Það vantar upplýsingar um markaskorara í leiknum en samkvæmt Úrslit.net var þetta nokkuð þægilegur sigur þar sem staðan var 2-0 í hálfleik.

Á sama tíma hafði Reynir S. betur gegn Einherja í þýðingarlitlum leik fyrir stöðutöfluna.

KH 4 - 0 Sindri
Vantar upplýsingari

Reynir S. 3 - 2 Einherji
0-1 Björn Andri Ingólfsson ('15)
1-1 Aleksandar Jeftic ('40, víti)
2-1 Magnús Magnússon ('42)
2-2 Georgi Ivanov Karaneychev ('79)
3-2 Hörður Sveinsson ('83, víti)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner