Parma 0 - 1 Juventus
0-1 Giorgio Chiellini ('21)
0-1 Giorgio Chiellini ('21)
Ítalíumeistarar Juventus hefja titilvörnina á útivallarsigri gegn Parma. Miðvörðurinn reyndi Giorgio Chiellini gerði eina mark leiksins í kjölfar hornspyrnu.
Síðar í hálfleiknum kom Cristiano Ronaldo knettinum í netið en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu. Hausinn hans var rétt fyrir innan rangstöðulínuna þegar hann lagði af stað í hlaupið.
Bæði lið fengu fín færi en þau voru af skornum skammti í tíðindalitlum leik.
Chiellini innsiglaði stigin þrjú í fyrsta leik Maurizio Sarri við stjórnvölinn. Paulo Dybala, Emre Can og Matthijs De Ligt voru meðal ónotaðra varamanna.
Athugasemdir