Pressan eykst á hollenska knattspyrnustjóranum Ronald Koeman eftir tap Barcelona gegn erkifjendunum í Real Madrid.
Leikurinn var líflegur frá fyrstu mínútu. Madrídingar sköpuðu sér fín færi í byrjun leiks en besta færið átti Sergino Dest, varnarmaður Barcelona. Memphis Depay kom sér inn í teiginn og fann Dest sem var kominn í dauðafæri gegn Thibaut Courtois en hann þrumaði boltanum yfir markið.
Sjö mínútum síðar skoraði austurríski varnarmaðurinn David Alaba. Hann vann boltann á eigin vallarhelming og kom boltanum áleiðis á Rodrygo. Brasilíski vængmaðurinn fann Alaba aftur sem þrumaði boltanum efst í hægra hornið. Óverjandi.
Það reyndist eina mark leiksins. Barcelona náði ekki að svara í seinni hálfleiknum.
Real Madrid hefur unnið viðureign þessara liða fjórum sinnum í röð. Real er á toppnum með 20 stig og Barcelona er í níunda sæti með 15 stig.
Koeman talaði um það á fréttamannafundi eftir leik að Barcelona væri að bæta sig. Stuðningsfólk Börsunga virðist ekki sammála því; allavega stór hópur þess.
Stór hópur myndaðist fyrir utan Nývang í dag - eftir leikinn - og reyndu að hindra för Koeman er hann var að reyna að keyra heim. Slegið var í bíl hans og fúkyrði látin falla. Barcelona hefur fordæmt hegðunina.
Það hefur allt verið í rugli hjá Barcelona undanfarin ár. Félagið hefur tekið heimskulegar ákvarðanir í bland við kórónuveirufaraldurinn, og það hefur skilað liðinu miklum fjárhagsvandræðum. Út af þessum fjárhagsvandræðum, þá þurfti félagið að láta Lionel Messi fara í sumar.
Það er því ekki hægt að kenna þjálfaranum um allt, en árangurinn er samt vonbrigði.
La salida de Koeman del estadio....
— Universo FCBarcelona (@UNIVERSO_1899) October 24, 2021
Hay que cortar esta situación de raíz. No es sostenible. pic.twitter.com/1rxDTnWhyI
Athugasemdir