25.01.21 - 20:43
Brynjar Ingi Erluson
Moyes vill fá Lingard á láni frá Man Utd

Jesse Lingard á leið til West Ham?

Mynd: Getty Images

Jesse Lingard á leið til West Ham?

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United hefur haft samband við Manchester United um að fá Jesse Lingard á láni út tímabilið en þetta kemur fram á Sky Sports.
Þessi 28 ára gamli vængmaður hefur aðeins spilað þrjá leiki fyrir United á þessari leiktíð.
Hann hefur leikið tvo leiki í enska deildabikarnum og einn leik í FA-bikarnum en honum er frjálst að fara frá félaginu á láni.
Samkvæmt Sky hefur West Ham rætt við Man Utd um að fá Lingard á láni út tímabilið.
Mörg félög á Englandi hafa sýnt leikmanninum áhuga en WBA, Tottenham, Sheffield United og Newcastle eru á meðal þeirra liða.