Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. janúar 2021 18:31
Brynjar Ingi Erluson
Neymar velur úrvalslið PSG - Beckham, Buffon og Zlatan í liðinu
Neymar velur marga Brasilíumenn í liðið
Neymar velur marga Brasilíumenn í liðið
Mynd: Getty Images
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur valið úrvalslið franska félagsins Paris Saint-Germain en það er margt sem kemur á óvart í valinu.

Neymar valdi úrvalsliðið til að fagna 50 ára afmæli PSG en það má finna fjölmarga Brasilíumenn í liðinu.

Gianluigi Buffon er í marki PSG þrátt fyrir að hafa spilað aðeins eitt tímabil með liðinu.

Zlatan Ibrahimovic, David Beckham og George Weah fá þá allir pláss í liðinu en það má sjá hér fyrir neðan sem og myndband af Neymar velja liðið.

Úrvalslið PSG: Gianluigi Buffon (M), Dani Alves, Alex, David Luiz, Maxwell, Thiago Motta, David Beckham, Nene, Ronaldinho, George Weah, Zlatan Ibrahimovic.


Athugasemdir
banner
banner