Fotbolti.net
25.03.18 - 23:00
Elvar Geir Magnússon

Helgi Kolviðs: Perú sterkari en Mexíkó

Auglýsing
Helgi með boltann á æfingu.

Helgi með boltann á æfingu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Helgi Kolviðsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, telur að Perú sé sterkari andstæðingur en Mexíkó. Ísland tapaði 3-0 gegn Mexíkó í fyrranótt en aðfaranótt miðvikudags leikur liðið við Perú. Mexíkó er í 17. sæti á heimslista FIFA en Perú er í 11. sæti.
„Þetta eru svipaðar þjóðir en Perú er sterkari,\" sagði Helgi við Fótbolta.net í New York í dag.

„Þeir eru líkamlega sterkari og hraðir í skyndisóknum. Þeir pressa ekki það mikið en það er rosalegur hraði í skyndisóknum. Þetta er lið á toppmælikvarða og að mínu mati sterkari andstæðingur en síðast. Við þurfum að eiga mjög góðan dag á móti þeim.\"

Þrátt fyrir 3-0 tap gegn Mexíkó þá fékk íslenska liðið ekki síðri færi í leiknum. „Þetta 3-0 mark gerði leikinn ljótan í lokin en það var fullt af góðum hlutum,\" sagði Helgi.

„Áður en við fengum markið á okkur í fyrri hálfleik þá vorum við miklu betur inn í leiknum og áttum miklu fleiri færi,\" sagði Helgi einnig en hann fer nánar yfir leikinn gegn Mexíkó hér að ofan.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.