Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 25. mars 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Manchester United vonast eftir að landa Bellingham
Jude Bellingham.
Jude Bellingham.
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að forráðamenn Manchester United séu bjarstýnir á að landa miðjumanninum Jude Bellingham í sumar.

Manchester United hefur sett saman lista yfir leikmenn sem félagið vill kaupa í sumar og þar er Bellingham ofarlega á blaði.

Hinn 16 ára gamli Bellingham hefur byrjað 25 leiki með Birmingham í Championship deildinni í vetur.

Manchester United hefur fylgst vel með leikmanninum og félagið vonast til að leikmaðurinn velji að koma á Old Trafford.

Borussia Dortmund hefur sýnt Bellingham áhuga sem og fleiri stórlið.
Athugasemdir
banner
banner
banner