Fotbolti.net
25.07.22 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Juve reynir að losa Arthur og Ramsey - Paredes efstur á lista

Juve reynir að losa Arthur og Ramsey - Paredes efstur á lista
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórveldið Juventus er að endurbyggja liðið sitt í sumar og vinnur nú að því að losa tvo miðjumenn til að lækka launakostnað og gera pláss fyrir nýjan leikmann.

Brasilíski miðjumaðurinn Arthur er til sölu ásamt hinum velska Aaron Ramsey. Arthur, 25 ára, á þrjú ár eftir af samningnum sínum en Ramsey er aðeins með eitt ár eftir.

Valencia hefur mikinn áhuga á Arthur og er að reyna að fá hann á lánssamningi með kaupmöguleika.

Það eru ekki mörg áhugasöm félög þegar kemur að hinum ofurlaunaða Ramsey. Félagið er í viðræðum við hann um starfslok og ljóst að miðjumaðurinn þarf að taka á sig verulega launalækkun hjá næsta félagi.

Juve ætlar að festa kaup á Leandro Paredes, argentínskum miðjumanni PSG, til að fylla í skarðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.