Fotbolti.net
25.08.19 - 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sjáðu sigurmarkið sem Ágúst gerði fyrir Víkinga í kvöld

Sjáðu sigurmarkið sem Ágúst gerði fyrir Víkinga í kvöld
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Eðvald Hlynsson gerði sigurmarkið þegar Víkingur R. vann 1-0 sigur á Grindavík í fallbaráttuslag við erfiðar aðstæður á Víkingsvelli á þessu sunnudagskvöldi.
Víkingar voru þolinmóðir í leit sinni að sigurmarkinu, en það gerði Ágúst þegar 10 mínútur voru til leiksloka.

„Davíð upp að endamörkum með fyrirgjöf sem gestirnir ná ekki að hreinsa. Boltinn dettur fyrir Ágúst sem hamrar hann í netið af vítapunkti," skrifaði Sverrir Örn Einarsson í beinni textalýsingu þegar markið kom.

Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn.

Sigurmarkið var birt á Vísi og má sjá það hér að neðan. Víkingar eru eftir sigurinn í áttunda sæti, fjórum stigum frá Grindavík, sem er í fallsæti.

Ágúst Eðvald: Við eigum ekki að horfa niður

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.