Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 25. nóvember 2019 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Neil Critchley stýrir Liverpool í enska deildabikarnum
Neil Critchley er hér vinstra megin á myndinni
Neil Critchley er hér vinstra megin á myndinni
Mynd: Getty Images
Neil Critchley, þjálfari U23 ára liðs Liverpool, mun stýra aðalliðinu í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í næsta mánuði.

Liverpool mætir Aston Villa í 8-liða úrslitum deildabikarsins í næsta mánuði en félagið mun stilla upp ungum leikmönnum þar sem aðalliðið verður í Katar að spila á HM félagsliða.

Leikurinn gegn Aston Villa fer fram 17. desember en sólarhring síðar spilar Liverpool í undanúrslitum HM félagsliða.

Neil Critchley, sem þjálfar U23 ára liðið, mun stýra Liverpool á Villa Park og mun stýra æfingum liðsins á meðan Jürgen Klopp undirbýr aðalliðið í Katar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner