Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 25. nóvember 2020 10:04
Magnús Már Einarsson
Kristín Erna aftur í ÍBV (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Kristín Erna Sigurlásdóttir hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍBV á nýjan leik.

Kristín Erna spilaði með KR á nýliðnu tímabili þar sem hún skoraði eitt mark í fjórtán leikjum þegar liðið féll úr Pepsi Max-deildinni.

Kristín á að baki 136 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim 45 mörk.

„Við bjóðum Kristínu hjartanlega velkomna heim og hlökkum til að sjá hana spila aftur undir merkjum ÍBV," segir á heimasíðu ÍBV.

Kristín hefur lengst af á ferlinum spilað með ÍBV en auk þess að spila með KR í ár þá lék hún með Fylki árið 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner