Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 25. nóvember 2022 11:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvö stangarskot á tíu sekúndum og svo ótrúlegt klúður
Azmoun svekktur með að hafa ekki skorað.
Azmoun svekktur með að hafa ekki skorað.
Mynd: Getty Images
Íran ætti að vera búið að taka forystuna í morgunleiknum á heimsmeistaramótinu.

Íran var fyrir stuttu að eiga tvö stangarskot á tíu sekúndum. Svo fékk Sardar Azmoun algjört dauðafæri en skallaði boltann beint á Wayne Hennessey í marki Wales.

Hægt er að sjá myndband af þessu öllu saman með því að smella hérna.

Þetta er mikilvægur leikur fyrir þessi bæði lið. Wales var með eitt stig fyrir þennan leik eftir jafntefli gegn Bandaríkjunum í fyrstu umferð. Gareth Bale gerði þar jöfnunarmarkið úr víti. Íran er án stiga eftir stórt tap gegn Englandi í frumraun sinni.

Jafntefli væru vond úrslit fyrir bæði lið en þannig er staðan núna þegar um klukkutími er liðinn af leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner