Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
   fös 26. janúar 2018 20:27
Ingólfur Stefánsson
Brynjar Björn: Vorum svolítið skrefinu á eftir
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK var svekktur eftir tap HK gegn Grindavík á Fótbolta.net mótinu í kvöld en er ánægður með frammistöðu liðsins á mótinu.

„Það var ekkert mikið á milli liðanna í færum en Grindvíkingarnir voru ívið sterkari úti á vellinum og við vorum svolítið skrefinu á eftir," sagði Brynjar eftir leik.

HK-ingum hefði nægt jafntefli til að komast í úrslitaleik mótsins en Brynjar segir að þeir hafi aldrei náð að setja almennilega pressu á Grindavík.

„Við skoruðum fyrsta markið seint. Við skoruðum reyndar mark sem leit út fyrir að vera löglegt frá mínu sjónarhorni. Ég veit ekki hvernig það leit út fyrir línuverðinum."

Brynjar segist ánægður með hvernig liðið líti út eftir fyrstu undirbúningsleikina.

„Við erum búnir að spila vel og erum mátulega skynsamir miðað við árstíma. Við höfum dreift álaginu vel og allir fengið sín tækifæri."

Viðtalið við Brynjar má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner