Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 26. febrúar 2021 14:05
Magnús Már Einarsson
Solskjær um Martial: Allir lenda í erfiðum kafla
Martial hefur skorað sjö mörk á tímabilinu.
Martial hefur skorað sjö mörk á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segist vera ánægður með vinnuframlag Anthony Martial en Frakkinn hefur verið gagnrýndur að undanförnu.

Martial skoraði 23 mörk á síðasta tímabili en á þessu tímabili eru mörkin orðin sjö talsins. Solskjær segir hins vegar að Martial sé að leggja hart að sér.

„Anthony veit hvað við viljum og hann er að leggja mjög hart að sér til að standa sig vel fyrir liðið. Það er það sem ég er ánægðastur með," sagði Solskjær.

„Ég sé hann alla daga á æfingum. Hann sest ekki niður og bíður eftir að hlutirnir gerist. Hann veit að hann þarf að láta þá gerast."

„Við hvetjum hann, þjálfum hann og við vitum að hann er með hæfileika og gæði. Allir lenda í erfiðum kafla. Við sáum (gegn Real Sociedad) að hann er að leggja harðar að sér og það er aðalmáið."

Athugasemdir
banner
banner
banner