Tómas Bjarki Jónsson, fyrirliði Njarðvíkur, varð fyrir því óláni að slíta krossband í leik liðsins gegn KA í Lengjubikarnum um liðna helgi.
Tómas staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Um fremra krossband er að ræða og þá er ytri liðþófi í hné skemmdur.
Tómas staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Um fremra krossband er að ræða og þá er ytri liðþófi í hné skemmdur.
Atvikið átti sér stað inni í Reykjaneshöllinni eftir 80 mínútna leik, Tómas komst inn í sendingu og lenti í návígi, við snertingu við andstæðing festist Tómas í gervigrasinu og snerist upp á hnéð með þessum leiðinlegu afleiðingum.
„Þetta var mikill sársauki og ég fór beint upp á slysó. Þetta kom svo í ljós eftir segulómun. Þetta er skellur en svona er lífið, það er bara hausinn upp og áfram gakk," segir Tómas Bjarki.
Hann er 22 ára miðjumaður sem gekk í raðir Njarðvíkur frá Augnabliki fyrir tímabilið 2023. Hann hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin tímabil.
Njarðvíkingar bíða eftir niðurstöðu varðandi meiðsli Oumar Diouck sem meiddist einnig gegn KA. Belgíski sóknarmaðurinn fer í myndatöku seinna í dag.
Athugasemdir



