Fotbolti.net
26.06.18 - 12:54
Elvar Geir Magnússon

Guðni Bergs: Finn mikinn hug í strákunum

Auglýsing
Guðni Bergsson.

Guðni Bergsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Menn eru staðráðnir í að selja sig dýrt í þennan síðasta leik í riðlinum. Dagsskipunin er að spila til sigurs og ég finn mikinn hug í strákunum. Það eru allir staðráðnir í að gera sitt allra besta,\" segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ, um leikinn gegn Króatíu í kvöld.
Ísland vann Króatíu 1-0 fyrir ári síðan og endaði á toppi riðilsins í undankeppni HM.

„Þetta er lið sem við þekkjum vel. Við unnum þá síðast og við ætlum að vinna þá aftur,\" sagði Guðni en íslenska liðið hefur vakið mikla athygli á HM.

„Við erum með vinsælt lið. VIð stöndum fyrir margt gott í fótboltanum og fólk er að hrífast með úti um allan heim. Við erum auðmjúk og þakklát. Við viljum sýna hvað við erum góðir og ná í þrjú stig í kvöld.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir Guðni meðal annars króatíska liðið, Rússland, HM og fleira.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.