Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. júní 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Fimm leikir í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
KA og Fram eigast við í bikarnum
KA og Fram eigast við í bikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
16-liða úrslit Mjólkursbikars karla hefjast í kvöld með fimm leikjum en einn úrvalsdeildarslagur er á dagskrá er KA fær Fram í heimsókn á KA-völl.

KA og Fram gerðu 2-2 jafntefli á KA-vellinum á dögunum í Bestu-deildinni en liðin mætast nú í bikarnum.

Eiður Smári Guðjohnsen og hans menn í FH spila við ÍR á Kaplakrikavelli á meðan Ægir spilar við Fylki. Njarðvík og KR eigast þá við á Rafholtsvellinum klukkan 19:45.

Alla leiki dagsins má sjá hér fyrir neðan.

Leikir dagsins:

Lengjudeild kvenna
14:00 Víkingur R.-Fjarðab/Höttur/Leiknir (Víkingsvöllur)

4. deild karla - B-riðill
19:00 Afríka-RB (OnePlus völlurinn)

Mjólkurbikar karla
14:00 HK-Dalvík/Reynir (Kórinn)
16:00 KA-Fram (KA-völlur)
19:15 FH-ÍR (Kaplakrikavöllur)
19:15 Ægir-Fylkir (Þorlákshafnarvöllur)
19:45 Njarðvík-KR (Rafholtsvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner