Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson mun ganga í raðir tyrkneska félagsins Altay í þessari viku ef marka má heimildir football.london.
Rúnar Alex verður lánaður til Altay frá Arsenal út tímabilið að sögn miðilsins.
Altay komst upp úr B-deildinni á liðinni leiktíð og spilar því í efstu deild á komandi leiktíð.
Rúnar Alex gekk í raðir Arsenal frá Dijon síðasta haust. Hann er 26 ára markvörður sem á að baki tíu A-landsleiki.
Ungstirnið Arthur Okonkwo mun taka stöðu Rúnars sem þriðji markvörður Arsenal.
Arsenal er að reyna að kaupa Aaron Ramsdale frá Sheffield United en það hefur ekki borið árangur til þessa. Sheffield United er að bíða eftir 30 milljón punda tilboði í hann. Þá er Bernd Leno auðvitað hjá félaginu.
Athugasemdir