Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
banner
   lau 26. september 2020 17:01
Baldvin Már Borgarsson
Magnús Már: 3-0 full mikið
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar var ósáttur með leik sinna manna eftir 3-0 tap gegn Leikni Reykjavík á Domusnova vellinum fyrr í dag.

Afturelding er í 8. sæti með 21 stig í Lengjudeildinni, alveg eins og fyrir leikinn.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 -  0 Afturelding

„Við höfum spilað betur í fullt af leikjum í sumar og strákarnir vita það. Þetta var ekki okkar besti leikur, 3-0 er samt svona full mikið miðað við það að við klúðrum vítaspyrnu í lokin og gefum mark.''

„Leiknisliðið er mjög gott og átti sigurinn skilið, mjög gott lið með öfluga sóknarlínu sem refsaði okkur í dag.''


Hvað klikkaði hjá lærisveinum Magga?

„Bara einbeitingarleysi og klikkuðum á varnarleiknum á örlagaríkum augnablikum, það var ekkert í gangi í leiknum í fyrri hálfleik, bara 50/50 leikur í fyrri hálfleik og við klikkum í einu momenti og þeir skora, það er bara dýrt.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Maggi betur um leikinn, stöðuna á leikmannahópnum og umdeildan dóm þar sem Afturelding vildi fá rautt spjald á Dag Austmann.
Athugasemdir
banner