UEFA hefur samþykkt að hafa þriggja leikja landsliðsglugga í mars og september á næsta ári.
Í október er fyrsti þriggja leikja landsliðsglugginn á dagskrá en vanalega eru í mesta lagi tveir leikir í hverjum glugga. Þeim þarf að fjölga í þrjá eftir að landsleikjaglugganum í mars 2020 var aflýst og EM frestað vegna Covid-19.
Ákvörðunin var tekin í samráði við samtök evrópskra knattspyrnufélaga og deildir í Evrópu.
Ísland mætir Rúmeníu, Danmörku og Belgíu í næsta landsliðsglugga.
Athugasemdir