Spænska félagið Atlético Madríd íhugar að selja slóvenska markvörðinn Jan Oblak til Manchester United í janúar, en það er Mirror sem greinir frá.
Oblak, sem verður þrítugur á næsta ári, verður samningslaus eftir þetta tímabil.
Hann sér ekki fyrir sér að framlengja samning sinn við Madrídarfélagið og er það því að íhuga að selja hann í janúarglugganum.
Manchester United hefur mikinn áhuga á að fá Oblak, sem hefur verið með bestu markvörðum Evrópu síðustu ár.
Diego Simeone, þjálfari Atlético, vill fá Emilano Martínez, markvörð Aston Villa, í stað Oblak.
Athugasemdir