Fotbolti.net
26.10.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Milan tekur á móti Roma í stórleik

Hinn 39 ára gamli Zlatan Ibrahimovic er kominn með fjögur mörk í fyrstu tveimur deildarleikjunum. Hann skoraði öll mörk Milan í sigrum gegn Bologna og Inter.

Hinn 39 ára gamli Zlatan Ibrahimovic er kominn með fjögur mörk í fyrstu tveimur deildarleikjunum. Hann skoraði öll mörk Milan í sigrum gegn Bologna og Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur farið feykilega vel af stað undir stjórn Stefano Pioli og trónir á toppi Serie A með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir, með leik til góða á næstu lið.
Í dag er þó ansi þung þraut framundan þar sem AS Roma mætir í heimsókn. Þetta verður þriðji leikur Milan á rúmri viku en liðið lagði Inter að velli um síðustu helgi og Celtic í vikunni.

Svipaða sögu er að segja af Roma sem er búið að sigra gegn Benevento og Young Boys á síðustu dögum. Rómverjar hafa þó ekki farið jafn vel af stað í deildinni en þar eru þeir með sjö stig eftir fjórar umferðir. Þeir voru klaufar að fá dæmt tap í fyrstu umferð gegn Verona fyrir að mæta til leiks með óskráðan leikmann, miðjumanninn Amadou Diawara sem var í kjölfarið skráður hið snarasta. Leiknum lauk með markalausu jafntefli en þau úrslit fá ekki að standa.

Leikur kvöldsins verður afar áhugaverður þar sem Zlatan Ibrahimovic og Edin Dzeko munu mætast. Bæði lið eru að glíma við lítið magn meiðsla, heimamenn í Mílanó eru án Ante Rebic, Mateo Musacchio og Matteo Gabbia. Þá er Hakan Calhanoglu, einn af þeirra stjörnuleikmönnum, tæpur.

Roma verður án Diawara, Chris Smalling og Nicolo Zaniolo. Javier Pastore er tæpur.

Leikur kvöldsins:
19:45 AC Milan - Roma (Stöð 2 Sport 2)

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.